Færsluflokkur: Enski boltinn

Er eitthvað að?

Hvernig gat dómarinn dæmt á Gerrard þarna undir lokin?

Var ekki nógu ljóst að þetta var bæði aukaspyrna og gult spjald á hann sjálfan??

Ég dæmi nú ekki reglulega samsæri út frá leikjum og ég hef alltaf haldið ágætlega upp á Gerrard, en það kæmi mér ekki á óvart að Gerrard hafi ætlað sér að fá víti og aðstoðardómarinn hefur ábyggilega fengið borgað fyrir þetta.

Ég þoli ekki að horfa á leikmenn sem leika sér að detta og Gerrard virðist nú ætla að vera sá maður.


mbl.is Liverpool slapp með skrekkinn - Chelsea lá fyrir Roma - Eiður á bekknum allan tímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verry Terrables?

Hann gæti nú varla gert verri hluti en eru að gerast hjá liðinu núna.. slök knattspyrna leikin hjá liðinu og búnir að tapa fjórum leikjum í röð.

Ég hélt nú í vonina að félagið yrði selt og Keegan kæmi aftur.. en það er nú mikilvægara að gera eitthvað og reyna að koma liðinu uppúr fallsæti.


mbl.is Venables á leið til Newcastle?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott

Ég fékk næstum áfall þegar ég sá fréttina því ég las hana vitlaust.

Ég er þá ótrúlega feginn að fá þetta skoffínn ekki aftur.


mbl.is Dalglish tekur ekki við Newcastle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einmitt

Ég hef keyrt þessa götu milljón sinnum síðastliðin ár og hef aðeins einusinni séð lögguna vera að mæla og séð lögguna yfir höfuð kannski um 10 sinnum á þessari götu síðan ég fékk bílprófið fyrir um 4 árum síðan.

Þetta er nú ekkert mjög vel vaktað svæði en sem ég veit best er ekki mikið um slys þarna heldur sem betur fer.


mbl.is 24 óku of hratt í Skógarseli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er þetta?

Er þetta ekki bara Nígeríusvindl?

Eða bara heimamenn að styðja við bakið á sínum Martins.


mbl.is Nígeríumenn hafa áhuga á Newcastle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

85?

Eigum við ekki bara að leyfa Man Utd. taka þetta, þeir þurfa að rífa sig upp í deildinni og það væri ekki skemmtilegt hjá þeim að byrja á að tapa bæði gegn Chelsea og Liverpool.

Ég vona allavega deildarinnar vegna að Manchester vélin sé ekki búin, því Ferguson hefur gert ótrúlega hluti þarna í 22 ár. Lengi hefði ég viljað sjá þetta gerast, að hafa Man Utd. í neðri hluta deildarinnar.. en án þeirra meðal þeirra efstu er deildin varla sú sama. Eiga Liverpool og Chelsea að hanga á toppnum? Ég er viss um að Chelsea myndi sigra þá baráttu um titilinn og það er sísta liði sem ég vildi sjá vinna titilinn, því ég er ekki voða ánægður með allt þetta peningadæmi sem er komið í deildina.

Chelsea og nú Man City, sem verður líklega eitt af stærtu liðunum á næstunni, eru eiginlega orðin ógn við gæði fótboltans.

Það er skemmtilegra að fylgjast með liðum eins og Arsenal og Manchester United sem leggja metnað í það sem þeir gera og nýta reglulega leikmenn sem koma úr unglingliðinu og vinna titla, en eru ekki kaupandi allt sem er að gera eitthvað.

Ég ætla að vonast eftir sigri gestana um helgina, því mér myndi líða betur ef ég hætti að fá fréttir um hve vel Chelsea er að standa sig.

Þá er það bara hvaða lið kemur fleiri mörkum inn.. Man. U.hafa verið frekar vængbrotnir.. en leiðinlegasti leikmaður deildarinnar, Ronald, er komin aftur og spurning hvort hann nái að standa uppi gegn öllum þessum heimsklassa leikmönnum Chelsea.


mbl.is Chelsea hefur spilað 84 leiki í röð án taps á heimavelli í deildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÁ!

Eins gott!

Það er þá loksins góð frétt fyrir Newcastle í langan tíma!!


mbl.is Snýr Keegan aftur til Newcastle?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn tími á enn eina breytingu!

Ég vildi að ég hefði ekki eytt öllum peningunum mínum í Evrópuferð í sumar.. ég hefði getað hjálpað til við að mótmæta á laugardaginn.

 Ég vona að hann nái að selja félagið svo maður geti enn og aftur vonast eftir betri tímum hjá félaginu, því maður sér ekki bjarta tíma framundan í augnablikinu.


mbl.is Stuðningsmenn Newcastle ætla að mótmæla brotthvarfi Keegans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Zola til West Ham

Mér líkaði nú meira við gamla hárið á honum.

Annars flott fyrir West Ham að fá Zola, hann kunni sitt á vellinum og spurning hvort hann standi sig eins vel á hliðarlínunni.

 

Gianfranco Zola

 

Þá spyr ég hvað er að frétta af Newcastle? Hvort ætlar Ashley að selja félagið eða ráða nýjan stjóra?


mbl.is Zola gerir þriggja ára samning við West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með von um bjartari framtíð

Þessi frétt hentar mjög vel til að byrja á að fjalla um á nýju bloggsíðunni og á meðan ég man þá vil ég þakka fyrir allar þessa enga congrats með nýju síðuna. FootinMouth

Ég veit ekki hvorum megin ég á að byrja.. en allavega.. ég hef ekki þolað Chelsea í þessi ár síðan Rússinn kom vegna peninganna. En þeir gerðu þetta líka svo augljóst á sínum tíma og keyptu marga leikmenn á uppsprengdu verði.

Nú hafa nokkur félög verið keypt og nú síðast Manchester City og félög þurfa að passa sína leikmenn sem skara framúr því þessi peningafélög er fljót að kaupa leikmenn á of mikið.

Ef Newcastle verður keypt þá ætla ég að segjast ánægður en ekki endilega peningana vegna. Newcastle er mitt félag og ég hef staðið með mínu félagi í 10 ár. En nú upp á síðkastið var of mikið, ég er búinn að vera frekar pirraður yfir öllum þessum fréttum að allt sé í háaloftunum hjá félaginu og varð frekar sár yfir að Keegan þurfti að fara, því ég var að vona að loksins væri eitthvað að gerast síðan Bobby Robson fór.

Newcastle skjöldurinn

En fyrst allir peningarnir eru að streyma í enska boltann þá er ég alveg ágætlega sáttur að Newcastle endi ekki á að verða fátækasta félagið í úrvalsdeildinni og falli vegna fátæktar.. allavega sýndist mér Mike Ashley ekki nenna að dæla peningunum sem félgaði þurfti fyrst þeir vildu að Owen tæki á sig launalækkun. En fyrst verður Anil Ambani (vá hvað það er skrýtið nafn) að kaupa félagið.

Ég verð að segja að ég vil Wise burt og Keegan aftur, ég hefði viljað Milner aftur og halda Owen.

Annars ef þetta fer þannig að félagið verið keypt og Keegan komi aftur verð ég eins sáttur og ég get.


mbl.is Vænkast hagur Newcastle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband